06.05.2008 16:35:03 / anna1987

..

komið þið sæl og blessuð. Sit hérna í vinnunni og það er ekkert að gera ! Annars er búið að vera margt að hugsa síðustu daga :) ég og Ásta tókum okkur frí eftir hádegi í gær og skruppum í borgina.. gott stundum að stinga smá af úr vinnunni... Keypti mér bakgrunn til að geta farið að taka myndir af ykkur ;) hann var örlítið stærri enn ég hélt og við gátum engan veginn komið þessu í celicuna :| enn góður gæi að nafninu Hilmar kom og reddaði mér.. hvar væri maður án hanns :haha: fórum svo í Kringluna að fá okkur eitthvað mein óhollt að borða :$ það er bara einhvernveginn þannig að það er ekki hægt að borða eitthvað hollt þegar maður ætlar að vera fljót að borða í reykjavík.. maður endar alltaf á einhverjum hamborgarastað eða á dominos :o

Annars er skólinn bara að meika það.. þetta er ö-r setning sem ég hef aldrei sagt áður. Get ekki beðið eftir að fara á laugardaginn :d erum að fara einkaþjálfa í fyrsta skipti.. mjög spennandi.. síðast var þolpróf og þá var bara einn af okkur dreginn og píndur alveg til dauða.. eða vona næstum :o hann var látinn púla á hlaupabrettinu og tekið úr honum blóð til að athuga stadussinn á mjólkursýrunni og allskonar svoleiðis.. mjög gaman að sjá niðurstöðurnar út úr því.. vorkenndi honum nú samt mjög mikið, grei strákurinn var með 160 í púls áður enn hann byrjaði ! mjög stressandi að vera með 20 að horfa á sig og vita ekkert hvað maður er að fara að gera.. hihi.. hann náði nú samt að standa í lappirnar og kláraði þetta með stæl.

Hvítasunnan næstu helgi og frí framundan.. ég og Dögg kannski að fara í jeppaferð með einhverju góðu fólki og skreppa uppá jökul á sleða 8) gæti verið mjög skemmtilegt ef það verður gott veður. Annars eru bara rúmir 2 mánuðir í að maður kíki á stöndina á furevertura 8) þetta er allt að gerast !!

ætla ekki að hafa það lengra í bili..


» 1 hafa sagt sína skoðun

12.04.2008 19:13:04 / anna1987

skóli

dagurinn byrjaði 07:30 á laugardegi 8| svolítið erfitt að vakna og keyra ein í borgina enn það hafðist.. Skrítið að vera alltí einu í skóla sitja og hlusta á kennara. þetta var samt rosa fínt. Gæjarnir þarna eru einhverjir fitness tappar út úr massaðir hihi...

annars er það bara Hvíta húsið í kvöld.. held að það verði alveg meka stuð frammeftir nóttu..

farin að sofa smá til að geta vakað í nóttinni 8)

bæ í bili !

» 3 hafa sagt sína skoðun

09.04.2008 16:15:09 / anna1987

vinna og vinna

komið þið sæl og blessuð..

búin að vera vinna og vinna síðan síðast :$ vooða lítið að gerast. 2 fyrirtæki að sækjast eftir mér í vinnu sem er reyndar mjög spennandi þar sem ég er ekkert að leita mér að vinnu, hef það bara fínt hérna í Húsó og Hvíta húsinu og sinna skólanum.. ekkert mikill tími sem maður hefur aukalega svona á daginn :| enn einn daginn verð ég svo ógeðslega rík að ég verð í fríi allann daginn og þarf ekkert að pæla í stað og stund :$;) eða svona næstum...

annars er svona eitt og annað að frétta.. ég og Ásta að meika það í ræktinni og kallinn hennar ástu meira segja kominn með.. Þú átt hrós skilið félagi ;) Celican komin á göturnar aftur og mikið er ég fegin ! á ekki orðið yfir að vera komin loksins á bíl ég tala ekki um að opel sé bíll !! hahaha.. fólk þorir ekki að koma í heimsókn þar sem það standa 7-8 bílar í halðinu á hverju kvöldi.. fólk heldur bara að það sé alltaf afmæli eða eitthvað. 8|

Komin með smá spennu fyrir skólann.. byrjar á laugardaginn næsta, get ekki bíðið ! get verið að æfa einsog brjálæðingur í laugum einsog ég vil í 2 og hálfan mánuð :haha: eitthvað verður maður komin í form fyrir sólina, enda ekki veitir af.. á eitt og hálft páksaegg eftir :P Orri kom um daginn og gaf mér eitt hehe.. kappinn borðar ekki páskaegg enda má varla við því ! (djóók) enn ég setti það bara í frysti þannig að ég get borðað það bara í sumar eða haldið áfram að horfa á það.. má víst ekki borða nammi.. skulda ástu reindar pening.. erum í veðmáli :( ég nammigrísinn er sko feitt að tapa ! :S fékk mér lítið prins póló áðan.. gaaat þetta ekki lengur - stundum er bara eitthvað sem kallar á þetta súkkulaði 8| og reyndi allt.. drakk íískallt vatn, fór aðeins út, drakk meira vatn og ég veit ekki hvað og hvað.. það er sem sagt 1-0 fyrir henni og ég í mínus !

jæja.. ætla fara gera eitthvað hérna.. blanda einsog einn bleikann.. liturinn í dag !!!

» 1 hafa sagt sína skoðun

25.03.2008 23:36:16 / anna1987

jamann

BOOORING !

leiðinlegsta sem ég veit er að vera heima lasin :$ búin að liggja uppí rúmi í allan dag með fjarsteinguna i annari og ekkert í hinni.. búin gjörsamlega að horfa á allar myndir sem ég er búin að vera ná í 2x.. Sif er samt yfir sig kát að einhver sé heima með sér svona allann daginn :) er búin að vera í nokkra daga páskafríi með henni. Fórum meðal annars í fjöruferð með Ástu og hundinum hennar en myndirnar koma á myspace á eftir.. það var svoo rugl gott veður að ég náði að brenna.. sólin var sko í sínu besta skapi. 8) maður gerir alltof lítið af því að fara með hana í fjöruna og leifa henni að leika sér.. það er barasta ekkert svo leiðinlegt heldur.. allskonar drasl sem maður var að rekast á.. ef einhver hefur týnt hurð þá get ég bennt ykkur á hana.. rákumst sem sagt á heila útidyrahurð í fjörunni á leiðinni út í Þorlákshöfn hehe.. eftir að hundarnir voru orðnir uppgefnir fórum við eitthvað langt í burtu og Örvar fór að skjóta einhverna fulga og ég að taka myndir :) nema hvað ? náði alveg ágætismyndum af þessu öllu saman :) ásta neiddist til að prófa að skjóta.. var ekki alveg að þorfa því enn á hrós skilið fyrir að taka í gikkinn !! ég þori því allavega ekki !!

Get ekki beðið eftir að komast í ræktina aftur.. 6 páskaegg horfin í mallann minn.. fékk kannski smá hjálp en það var ekki mikið.. á eitt í vinnunni óklárað og alveg heilt hérna heima.. :) þannig ég er bara svona hálnuð með páskavertíðina.. enn það verður bara tekið á því í Styrk ;) ég og ásta höfum verið alveg geggjað duglegar að vakna á morgnanna kl 6 og mætt í ræktina og svo tekur maður box tíma á kvöldin.. Ætla að massa ástu í drasl þannig hún verður kannski einsog ég einn daginn ;) hver veit..

ætla ekki að hafa það lengra krúttin mín..


» 4 hafa sagt sína skoðun

03.02.2008 21:59:47 / anna1987

Góða besta

já já... hérna er -4 og hef það bara rosa fínt Dögg !! "ekkert öfund" "kannski smá"

enn ég er alveg að fara til tjúratúra bara 100 og eitthvað dagar þangað til.. týndi tölunni :(
Það er samt voða lítið að frétta.. nema kannski nú er ég loksins komin með einkaþjálfara þannig nú er ég að æfa minnst 6x í viku :) ætla að reina að fara á morgnanna þannig ég sá að æfa svona 8 sinnum í viku :D þá ætti maður að vera komin í ágætisform svona í apríl þegar skólinn byrjar :) hlakka ekkert smá til að prófa þetta og takast á við eitthvað nýtt. Náði loksins að skrá mig í einkaþjálfaraskólann og er búin að borga þannig það verður ekkert breytt nema eitthvað mikið komi uppá :haha: ætla taka þetta á 100% áhuga !! ;):D

Er komin með alveg frábært verkefni í vinnunni.. :) gef út svona smá fréttapésa einu sinni í mánuði. ekkert smá skemmtilegt þar sem mér finnst alveg æðislegt að bulla eitthvað rugl og hef alveg svakalegann áhuga á svona "blaða" mennsku :haha: í þessum pésa tek ég viðtal við einhvern í húsó og reini að grafa upp eitthvað sem maður veit ekki og kemur á óvart.. sumir eru búnir að vinna þarna í mörg ár saman og ég reini að finna eitthvað mjög asnalegt um viðkomandi manneskju. Svo er uppáhalds "dálkurinn" minn sem eru smáauglýsingar ;) þá læt ég starfsfólk vera að selja, kaupa eða óska eftir einhverju sem tengist því.. og er í leiðinni að skjóta á það ;) tók t.d mynd að einum bíl og var að selja hann af því að hann réði ekkert við afborganirnar.. mjög skemmtilegt að sjá svipinn á manninum þegar hann sá þetta hihi.. vara mánaðarins er líka mjög skemmtilegt er svona það leiðinlegasta í blaðinu !! hehe.. eitthvað rugl bara sem er þó satt enn eitthvað sem engum langar að vita ;)

ætla ekki að hafa það lengra..

p.s Dögg ég er að búa til myspace handa þér :haha:


» 1 hafa sagt sína skoðun

22.01.2008 13:13:04 / anna1987

168

 

nú eru bara 168 dagar þar til að við förum í sólina 8) tíminn er svo fljótur að líða.. í gær var 169 dagar og núna strax bara 168.. já tíminn flígur !! ;)

ég og Svana fengum sem sagt þessa flugu í hausinn fyrir nokkrum dögum og bókuðum sama dag eða svona 3 klst seinna :haha: höfum ekki verið þekktar fyrir að velta okkur uppúr hlutunum fyrir ekki neitt.. hehe.. enn já 8 júlí er dagurinn og Fuerteventura er staðurinn. Er alltaf að hitta meira og meira fólk sem hefur farið þangað og líkað alveg rosalega vel. Verðum á alveg geggjuðu hóteli (Oasis Papagayoþar sem það er göngufæri í allt. flottur vatnsrennibrautagarður við hliðiná hótelinu og alles :haha: hver hefur ekki gaman af svoleiðis

vildi bara deila þessu með ykkur ;)

 


» 2 hafa sagt sína skoðun

18.01.2008 11:15:07 / anna1987

MEIRA MEIRA DÓP MEIRA DÓP !!

ég var að lesa frétt á mbl sem fékk mig til að hugsa og er ekki ennþá búin að fá svar við þessu og mun sennilega aldrei fá !!

 hvernig ætli fíkniefnahundar séu þjálfaðir ?? einsog kemur framm í fréttinni er enginn fæddur til að finna fíkniefni 8| segir sig nokkuð sjálft.. Eitthvað hlítur hvutta að langa í smá dóp. Lögreglan sagði að þegar hundurinn finnur eitthvað fær hann verðlaun :o jeijj... hann fær bolta 8|

það þarf enginn að segja mér að hundurinn sé að finna þetta af því að hann veit að hann fær bolta í smá stund :o ég evast stórlega um það. Hundurinn minn er nú ekki svona vitlaus !!

ég held allavega að hundarnir fái fíkniefni í einhvernslags formi og eru alveg æstir í þetta og þess vegna séu þeir svona æstir að leita !


» 0 hafa sagt sína skoðun

18.01.2008 11:12:51 / anna1987

Hvað í ans ???

skór með spólvörn ? 8|

er þetta ekki eitthvað sem þarf að vera inná öllum heimilum ;) er ekki frá því að þeir séu með sídrifi og abs bremsum 8)

 

 


» 1 hafa sagt sína skoðun

15.01.2008 19:57:29 / anna1987

ég elska snjóinn

jæja.. kannski rétt að maður bloggi smá :) jólin búin og komið nýtt ár 2008 8) það byrjaði nú als ekki vel þar sem ég lá í pest um áramótin :(sprengdi þar að leiðandi ekkert upp enn svo kom 13-dinn og þá var sko B-O-B-A  ég, Jói og Sverrir vorum samanlagt með 36 kökur og fullt fullt af rakettum :D:D svo bara eldspítur og allt í drasl.. það var alveg geeeðveikt ;) ætlum sko að hafa þetta svona árlegann hitting og gera allt vitlaust :haha:

eftir jólin fór ég svo í bæinn og keypti mér svona home studio til að taka myndir :) rosalega flott og gæðin alveg 100% er búin að vera níðast á fólkinu hérna  heima ;) vantar núna bara vini og vandamenn ;) blikk blikk... stofan heima er alveg undirlögð mömmu til mikillar gleði :$

annars er bara vinnan byrjuð aftur á fullu.. fór í bláfjöll á sunnudaginn og var í 6 klst. ekkert smáá gaman! get ekki beðið eftir að það opni aftur svo maður geti farið aftur, það er allavega nó snjór núna ;) talandi um snjóinn.. hann er æææðiii og út um allt.. gott að eiga 1 stikki jeppa sem veður yfir allt. :haha: allavega voru margir í vinnunni í dag sem gáti ekki farið á bílnum sínum heim.. hehe voru bara á kafi í snjó :!:

nó í bili..

hilsen Anna


» 0 hafa sagt sína skoðun

19.12.2007 17:44:14 / anna1987

...það eru að koma jóól..

þetta lag er að gera mig geðveika :o

 alveg að koma jól og ég sem ætlaði mér að vera í fríi á morgun og hinn til þess að komast aðeins frá öllu hérna í vinnunni og eiga mér smá líf ;) enn nei !! ég þarf að vinna bara meira í staðin.. frá 8 -10 í 4 daga  SÆLL ! skemmtilegt :| ég á ennþá eftir að kaupa jólagjafir og það er ennþá ekki komin upp ein sería í gluggana heima :cry: það er gjörsamlega enginn tími uhu !

hver nennir að koma heim að jólaskreyta ? :D


» 12 hafa sagt sína skoðun

09.12.2007 22:18:40 / anna1987

er pabbi þinn með þér.. ?

 

ótrúlegt hvað svona setningar geta fests á heilnum á manni :S  eigum við að ræða það eitthvað ?

 

                                  en úff.. vá hvað ég er lélegur bloggari ! :S

 

                 en í staðin get ég sagt ykkur svoo margt sem hefur drifið á daga mína 8)

 

  • vinnan gengur sinn vana gang.. ekkert að gera enda enginn hálviti að mála eitthvað brjálæðislega svona stuttu fyrir jól.. samt er alltaf einn og einn sem er eitthvað að dunda sem er rosa fínt.. alveg að komast í smá jólafrí:D  búin að taka mér frí í nokkra daga bara svona til að missa ekki af jólunum og vera með famelíunni og vinunum :haha:
  • Ása Valdís alveg að koma heim ! get ekki beðið bara ööörrfáir dagar.. eins gott að þú gefir þér smá tíma með mér Ása mín hehe.. verðum að bralla eitthvað !
  • Sif stækkar og stækkar.. ég og Díana fórum í bæinn í gær og ég verslaði dót handa henni fyrir 10 þús kall 8) henni ætti ekki að leiðast meðan ég er í vinnunni.. hef bara nánast ekkert séð hana.. heyri í henni vera elta bolta með bjöllu inní þessa stundina.. það er svo gaman að sjá svona lítið kríli svona ánægt með lífið :haha: fórum svo á Eyrarbakka til Svönu í heimsókn og þar fékk sif að leika sér við kóp sem er 1000 sinnum stærri en hún.. Sif fékk að taka eitt dót með sér og varð einu dóti fátækara fyrir vikið.. hann var miklu ánægðari með dótið heldur en Sif sem hann hefði léttilega geta étið í einum bita.. Hún lék sér bara að ógna honum einsog brjálæðingur ! mjög fyndið að sjá þau saman hehe...
  • Bláfjöll búin að opna og það var sko farið báða dagana ! frábært færi, frábært veður og frábært fólk ! er hægt að hafa það betra ?.. ne hélt ekki... ég og Díana fórum í gær og náðum að festa krúsann og allt í eina skaflinum á öllu svæðinu 8| aulinn ég !!! náði nú samt að losa mig 8) eftir góða stund hihi.. koma myndir af þessu eftir nokkra daga hérna :) þarf bara fá copy hjá Díönu.. Vorum allan tímann í barnabrekkunni þar sem hún var ekki alveg að höndla hina brekkuna sem var í gangi :o heheh.. skiljanlega.. enn í dag fórum við svo aftur og þá vorum við búnar að kalla út lið hehe.. fórum 4 í fjallið og það var svaka stuð.. skelltum okkur bara strax í stólinn og bombuðum niður.. ég var eina sem datt EKKI Á RASS... Dögg fékk sko flugferð og öll brekkan HLÓ .. sá bara hana standa í miðri brekkunni og skíði langt fyrir ofan hana.. !! algjör snillingur þar á ferð :) verst af öllu var að ég missti af þessu :( eftir þetta fórum við í bæinn og fórum á einhvern pizza stað á laugarveginum sem ég man ekki hvað heitir :$ enn mæli með honum.. mjög góður staður.. hehhe.. þið bara leitið.. ;)

atla ekki að hafa það lengra þar sem ég er farin út..

 


» 1 hafa sagt sína skoðun